ASI Logo v1 CMYK
 
Reykjavík 26. janúar 2023
 
Ályktun miðstjórnar ASÍ um miðlunartillögu Ríkissáttasemjara
Miðstjórn ASÍ lýsir því yfir að traust á embætti ríkissáttasemjara hefur skaðast með því að leggja fram ótímabæra miðlunartillögu í kjaradeilu Eflingar og SA.
Miðstjórn telur að færa megi rök fyrir og véfengja hvort embætti sáttasemjara hafi með þessum hætti farið út fyrir þær valdheimildir sem embættinu eru settar í lögum um stéttarfélög og vinnudeilur. Framganga embættisins er atlaga að sjálfstæðum samningsrétti stéttarfélaga, gengur gegn áratuga venjum um samskipti aðila vinnumarkaðarins og skorar miðstjórn ASÍ á ríkissáttasemjara að draga hana til baka. 
ASÍ telur heimild til að leggja fram miðlunartillögu vera neyðarúrræði sem takmarkist við að raunverulega hafi öll önnur úrræði verið tæmd og neyðarástand skapast. Viðræðum milli Eflingar stéttarfélags og SA hafi vissulega verið slitið en hins vegar standi nú yfir lýðræðisleg atkvæðagreiðsla um hvort boða skuli til verkfalls. Verkfallsboðun hafi því ekki verið samþykkt af félagsmönnum, verkfall ekki verið boðað og ekkert neyðarástand skapast.  
ASÍ telur heimild sáttasemjara jafnframt bundna við að átt hafi sér stað náið samráð við aðila um efni hennar og að hún eigi ekki að leggjast fram án þess að hafa a.m.k. þegjandi samþykki beggja aðila. Hvorugt þessara skilyrði sé uppfyllt.