Verkalýðsskólinn

Við kynnum með stolti, Verkalýðsskólann, samstarfsverkefni ASÍ og Háskólans á Bifröst, þriggja daga námskeið sem haldið verður á Bifröst 2. -4. september.  

Snemmskráningu er lokið, en opið verður fyrir skráningar út þessa viku.

Á námskeiðinu verður lögð áhersla á framsögn og örugga tjáningu, sögu verkalýðshreyfingarinnar, réttindi og skyldur á vinnumarkaði, kjarasamninga, fundarstjórn og samningatækni.

Auk námsins geta þátttakendur notið samveru í umhverfi Bifrastar, en boðið verður upp á skipulagðar gönguferðir á svæðinu og sameiginlega matartíma á Hótel Bifröst. Hægt er að bóka sig á námskeiðið með eða án gistingar og veitinga.

Námskeiðið hefst kl. 10 á föstudagsmorgni og lýkur seinnipart á sunnudegi.

Allar nánari upplýsingar og skráning eru á vef Háskólans á Bifröst -  https://www.bifrost.is/namid/endurmenntun/verkalydsskolinn

Allar nánari upplýsingar um námið og fyrirkomulag þess eru veittar á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..