person grey
26.febrúar 2022.

Stéttarfélagið Samstaða óskar eftir starfskrafi á skrifstofuna á Blönduósi.

Starfsheiti:
Gjaldkeri / þjónustufulltrúi – 100% staða, um framtíðar starf er um að ræða.     Vinnutími almennt frá kl. 9:00 -16:00. Óskað er eftir því að viðkomandi geti hafið störf um mánaðamót mars/apríl   eða eftir nánara samkomulagi.

Almennt ábyrgðarsvið:

  • Dagleg fjármálaumsjón á skrifstofu Samstöðu.
  • Þjónusta og samskipti við félagsmenn, m.a. túlkun kjarasamninga.

Helstu verkefni:

  • Almenn skrifstofustörf, símasvörun og afgreiðsla viðskiptavina.
  • Móttaka, flokkun, greiðsla reikninga, frágangur til bókara.
  • Innkaup fyrir kaffistofu og fundi.
  • Sjá um útreikninga á sjúkra- og starfsmenntsjóðum.
  • Undirbúningur gagna til launakeyrslu.
  • Eftirlit / vöktun með rafrænum tilkynningum og netfanga
  • Auk þess annast starfsmaður önnur störf sem yfirmaður kann að útdeila og falla innan eðlilegs starfssviðs gjaldkera / þjónustufulltrúa.

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Frumkvæði, skipulagning og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð kunnátta í ensku og íslensku
  • Þekking á bókhaldi og fjármálum
  • Góð þekking á upplýsingatækni
  • Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum

Nánari upplýsingar veitir Stefanía A. Garðarsdóttir, gjaldkeri í síma 4524932 og Guðmundur Finnbogason, formaður ( 8613894 ).

Laun samkvæmt kjarasamningi LÍV.

Umsóknum skal skilað inn á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.  

Umsóknarfrestur er til og með mánudeginum 14. mars 2022.