English and Polish below
Í dag opnar fyrir skoðanakönnun meðal félagsmanna Öldunnar, Samstöðu og Verslunarmannafélags Skagafjarðar um hugsanlega sameiningu félaganna.
Formenn félaganna hafa fundað reglulega, í umboði stjórna. Enn sem komið er, hefur ekkert stórvægilegt komið upp á sem gæti staðið í vegi fyrir því að ljúka vinnunni og leggja afraksturinn fyrir félagsfólk, til samþykktar eða synjunar.
Áður en lengra verður haldið, vilja formennirnir þó upplýsa félagsfólk og fá fram vilja þeirra til að vinnunni sé haldið áfram. Í því skyni hefur verið útbúinn bæklingur og hann sendur heim til félaga. Enska og pólska þýðingu er að finna hér að neðan.
Könnunin stendur í viku
Könnunin opnar kl. 13:00 fimmtudaginn 21. maí og henni lýkur viku síðar, fimmtudaginn 28. maí kl. 13:00.
Til að taka þátt þarf að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum. Svör er trúnaðarmál og ópersónugreinanleg.
Hlekkur á könnun
Kynningarbréf
English version
Wersja polska
