|
Smelltu hér til að fara á síðu með umsóknareyðublaði um sumarhús Stéttarfélagið Samstaða á eitt sumarhús á Illugastöðum í Fnjóskadal og eitt sumarhús í Ölfusborgum á móti Öldunni- stéttarfélagi í Skagafirði. Orlofsbyggðin Illugastöðum. Hitaveita og heitur pottur við húsið. Sími í þjónustumiðstöð Illugastaða, 4626199 Nánari upplýsingar á skrifstofum Samstöðu.
Sími í þjónustumiðstöð Ölfusborga, 4834260 Nánari upplýsingar á skrifstofum Samstöðu.
Íbúðir félagsins:
Íbúðin í Þangbakka 8 er þriggja herbergja með svefnaðstöðu fyrir 6. Barnarúm er í íbúðinni sem er á 5. hæð í lyftublokk. Íbúðin er vel staðsett í Mjóddinni, stutt í verslunarkjarna. Félagsmenn Samstöðu geta leigt íbúðina á kr. 4000 á dag. Helgar eru leigðar á kr. 8000 frá föstudegi til sunnudags.
-------------------------------------------------------------------------------- Íbúðin í Sóltúni 28 er 77 fermetra 2 herbergja íbúð, með svefnaðstöðu fyrir fjóra. Barnarúm og dýnur eru í íbúðinni. Íbúðin er á 7. hæð í lyftublokk. Bílskýli fylgir. Eldhús og stofa er í opnu rúmi og gengið er úr stofu út á svalir.
Einarsstaðir.
Orlofshverfið Stóru Skógum í Borgarfirði.
Samstaða leigir hús nr. 2 í Stóru Skógum frá 18.06 til 20.08 . 2010 Orlofshúsahverfið í Stóru-Skógum er í næsta nágrenni við Munaðarnes. Sami staðarhaldari og þjónustumiðstöð og í Munaðarnesi. Í húsinu er svefnpláss fyrir 6-8 manns. Stór verönd og heitur pottar. Miklir útivistarmöguleikar í Borgarfirði. Sundlaug að Varmalandi, þar er Grábrók og Skógrækt ríkisins hefur opnað reit með gönguleiðum við Hreðavatn. Lín í þjónustumiðstöð án leigugjalds. Gæludýr ekki leyfð.. Ódýr veiðileyfi í vötn í nágrenni t.d. Hreðavatn og Langavatn. Mikið úrval ferðaleiða um fagra og sögufræga staði, í byggð og inn til fjalla. Gæludýr ekki leyfð.
Staðarhaldari í Munaðarnesi er Kristján F. Tryggvason. Afgreiðsla hans og skrifstofa er í anddyri þjónustumiðstöðvar. Þangað sækja dvalargestir lykla, sængurfatnað o.fl. Með húslykli er afhentur lykill að símaklefa í anddyri áhaldahúss.Afgreiðsutími staðarhaldara er: mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 10-12 og frá kl. 15-17. Á föstudögum er afgreiðslutími frá kl.10-22 og laugardögum frá kl. 10-12. Drekagil (Akureyri)Íbúð í Drekagili á Akureyri
|