21

Starfsmaður 21. aldarinnar!

„Starfsmaður 21. aldarinnar!“ er hagnýtt námskeið fyrir alla þá sem þurfa og vilja styrkja sig í tækni.
Námskeiðið miðast við að nálgast tæknina og útskýra helstu tæknihugtök á „mannamáli“ með það að markmiði að efla sjálfstraust gagnvart tækni. Námskeiðið er hugsað sem fyrsta skrefið inn í tækniheiminn.
Á námskeiðinu er leitast við að efla einstaklinga í þeirri tækni sem mest ákall er um að einstaklingar tileinki sér til að styrkja stöðu sína á vinnumarkaði. Námskeiðið snýr að því að upplýsa einstaklinga um möguleg áhrif fjórðu iðnbyltingarinnar á samfélagið og einstaklinga á vinnumarkaði, sem og greina ákjósanlega hæfni og færni hvað varðar tækni með tilliti til niðurstaðna Stafræna hæfnihjólsins sem VR-stéttarfélag hefur þróað og hjálpar einstaklingum að greina eigin tæknifærni.
Félagsmenn í starfsmenntasjóðunum Starfsafl, Landsmennt , Ríkismennt, Sveitamennt, Sjómennt og Starfsmenntasjóði verslunar- og skrifstofufólks fá námskeiðið að fullu niðurgreitt á meðan ráðrúm leyfir. Námskeiðið er samtals 28 klukkustundir og skiptist í tvo hluta. Fyrri hluti • Fjórða iðnbyltingin. • Leiðarvísar að farsælu lífi. • Stafræna hæfnihjólið. Seinni hluti • Örvinnustofa 1: Hagnýting samfélagsmiðla (sóknarfæri á samfélagsmiðlum). • Örvinnustofa 2: Google í starfi, leik og námi (hluti af óþrjótandi möguleikum Google umhverfisins kynntir). • Örvinnustofa 3: Stafræn gagnavinnsla (myndvinnsla o.fl.). • Örvinnustofa 4: Forritun og stillingar (tölvuhlutar, tengingar og sjálfvirknivæðing). Námskeiðið er kennt í fjarnámi og geta einstaklingar um allt land sótt það. Þeir sem telja sig þurfa tæknilegan stuðning við fjarnám eða vantar tilheyrandi búnað (tölvu með vefmyndavél og nettengingu) er velkomið að sitja námskeiðið í húsnæði Mímis að Höfðabakka 9 og fá stuðning. Náms- og starfsráðgjafar Mímis eru einnig til staðar. Kennarar á námskeiðinu eru sérfræðingar í sínu fagi og vanir að nálgast nemendur á mismunandi getustigi hvað tækni varðar.
Tímasetning
Fyrsta námskeiðið hefst 20. október og lýkur 29. október 2020. Skráning og nánari upplýsingar á vef Mímis, www.mimir.is Umsjónarmaður: Anney Þórunn Þorvaldsdóttir, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.