Raforkukostnaður hjá meðalheimili hefur hækkað um allt að þriðjung frá því um mitt ár 2008. Miklar hækkanir á fastagjöldum fyrir flutning og dreifingu skýra stærstan hluta hækkananna en þau hafa hækkað um allt að 125% á síðustu tveimur árum.
Rafmagnsreikningurinn hefur hækkað mest hjá notendum Rarik og Orkubús Vestfjarða sem búsettir eru í dreifbýli, en heildar raforkukostnaður þeirra hefur hækkað um tæp 30% frá því um mitt ár 2008. Hjá notendum á svæði Rafveitu Reyðarfjarðar og í þéttbýli á Vestjörðum hefur raforkukostnaður einnig hækkað umtalsvert eða um 22-30%. Reikningur meðalheimilis á svæði HS orku og Norðurorku hefur á tímabilinu hækkað um fimmtung en minnst hækkun er hjá heimilum á svæði Orkuveitu Reykjavíkur eða um 6%.